“Hjálpa” er framhald af færnimerkinu “Plástra”. Hér lærir þú hvernig hægt er að hjálpa slösuðum, hvað þarf til að veita fyrstu hjálp og hvernig hægt er að koma í veg fyrir að einhver slasi sig. Áður en haldið er af stað að nema ókunn lönd er mikilvægt að vera viðbúin/n og kunna að meðhöndla áverka og slys sem upp kunna að koma.
Reynir á
- Lausnaleit
- Líkamlegt atgervi
- Að hugsa vel um eigin líkama
- Samvinnu
Kröfur
Til að fá færnimerkið “Hjálpa” þarftu að kunna og geta sýnt flokknum þínum og foringja að þú þekkir og kunnir skil á því sem færnimerkið “Plástra” krefst af þér.
Að auki þarftu að kunna skil á eftirfarandi:
- Að forgangsraða miðað við ABCD.
- Að losa um öndunarveg og framkvæma blástursmeðferð.
- Að leggja í hliðarlegu.
- Að búa um tognaðan ökkla.
- Að vita hvaða neyðarhjálparbúnað skal hafa með í göngur.
- Sýna að þú getir séð um eigið persónulegt hreinlæti í tjaldútilegu.
- Þekkja einkenni næringar- og vökvaskorts og vita hvernig má koma í veg fyrir hann.