Forsenda þess að vera skáti og geta tekið þátt í hinum ýmsu ævintýrum er að vita hvað skal gera ef slys og óhöpp verða. Það er mikilvægt að allir í flokknum viti á að gera þegar einhver meiðir sig eða slasast og það er hughreystandi að vita að vinir þínir viti hvað skal gera ef þú meiðir þig í ævintýrum ykkar í skátunum.
Reynir á
- Lausnaleit
- Líkamlegt atgervi
- Að hugsa vel um eigin líkama
- Samvinnu
Kröfur
Til að fá færnimerkið “Plástra” þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
- Hvernig meðhöndla skal minni sár og skurði.
- Hvernig á að búa um og hækka upp særða útliminn.
- Hvernig hægt er að fyrirbyggja nuddsár (eins og hælsæri) og hvernig á að meðhöndla þau ef þú færð þau.
- Vita hverjir eru mikilvægustu hlutirnir í sjúkrakassanum og hvernig á að nota þá.
- Hvernig á að hringja á sjúkrabíl, slökkvilið og lögreglu og hvaða upplýsingar þarf að gefa upp þegar hringt er.