
Lýðræði
Fálkaskátar
Dróttskátar
Dróttskátar
Tilheyrir þemanu samfélag í nóvember
ásamt eftirfarandi færnimerkjum.
Lýðræði er, meðal annars, sú sýn að skoðanir allra séu jafn réttháar og að allir hafi sama rétt á að hafa áhrif ákvarðanir sem varða hagsmuni heildarinnar. Til að lýðræði virki er mikilvægt að við höfum góðar og einfaldar leiðir til að taka sameiginlegar ákvarðanir. Hvernig er lýðræðinu háttað í þínum skátaflokki eða sveit?
Reynir á
- Eigin gildi
- Gagnrýna hugsun
- Samskipti
- Skilning fyrir samfélaginu/heiminum
Kröfur
Til að fá færnimerkið “Lýðræði” þarftu að kunna skil á eftirfarandi:
- Vita hvernig skipulagi er háttað í skátafélaginu þínu, BÍS og Alheimssamtökum skáta (WOSM/WAGGGS).
- Hafa tekið þátt í kosningum af einhverju tagi, t.d. í flokks- eða sveitarráðinu eða á aðalfundi skátafélagsins.
- Vita hvernig þú getur haft áhrif með því að skrifa ályktun eða tillögu til félagsstjórnar.
- Ræða í sveitinni þinni um lýðræði, hvernig raddir allra geta heyrst, hvernig best er að taka ákvarðanir o.s.frv.
- Halda fund með sveitinni þinni sem hefur fyrirfram ákveðna dagskrá, fundarstjóra og ritara.
- Hafa prófað, með sveitinni þinni eða félaginu, ólíkar aðferðir til að komast að sameiginlegri niðurstöðu, t.d. með hugstormun/þankahríð (brainstorming)