Færnimerki binda

Binda

Fálkaskátar Dróttskátar

Tilheyrir þemanu hnífar, hnútar og súrra í mars
ásamt eftirfarandi færnimerkjum.

Færnimerkið hnýta
Færnimerkið byggja

“Binda” er framhald á færnimerkingu “Hnýta”. Hér æfirðu þig í að leysa þrautir og hvernig má nota snæri/reipi á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt.

Reynir á

  • Lausnaleit
  • Líkamleg áskorun
  • Hugmyndaflug og sköpun

Kröfur

Til að fá færnimerkið “Binda” þarftu að geta eftirfarandi:

  • Geta hnýtt fimm ólíka hnúta, notað þá til að leysa alvöru verkefni og vita við hvaða tilefni hvaða hnútur hentar best.
  • Þekkja ólíkar tegundir af snæri og reipi og vita við hvaða tilefni er gott að nota hvaða tegund.
  • Kunna að búa til talíu og nota hana til að lyfta, draga eða spenna eitthvað upp.

Skráðu þig í Vogabúa

Skemmtilegt starf fyrir skáta á öllum aldri

Skráning í félagið