“Binda” er framhald á færnimerkingu “Hnýta”. Hér æfirðu þig í að leysa þrautir og hvernig má nota snæri/reipi á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt.
Reynir á
- Lausnaleit
- Líkamleg áskorun
- Hugmyndaflug og sköpun
Kröfur
Til að fá færnimerkið “Binda” þarftu að geta eftirfarandi:
- Geta hnýtt fimm ólíka hnúta, notað þá til að leysa alvöru verkefni og vita við hvaða tilefni hvaða hnútur hentar best.
- Þekkja ólíkar tegundir af snæri og reipi og vita við hvaða tilefni er gott að nota hvaða tegund.
- Kunna að búa til talíu og nota hana til að lyfta, draga eða spenna eitthvað upp.