Í sumar munu Vogabúar bjóða uppá skemmtileg og fjölbreytt sumarnámskeið líkt og fyrri ár. Þrjú námskeiðanna er í viku þar sem frídag ber upp og verður því 4ra daga námskeið gegn lægra gjaldi.

- Námskeið 1 – 10. júní til 13. júní – 17.500 kr. (4ra daga námskeið vegna annars í hvítasunnu)
- Námskeið 2 – 16. júní til 20. júní – 17.500 kr. (4ra daga námskeið vegna 17. júní)
- Námskeið 3 – 23. júní til 27. júní – 20.000 kr.
- Námskeið 4 – 30. júní til 4. júlí – 20.000 kr.
- Námskeið 5 – 7. júlí til 11. júlí – 20.000 kr.
- 14. júlí og framyfir verslunarmannahelgi – Verða ekki námskeið vegna sumarlokana.
- Námskeið 6 – 5. ágúst – 8. ágúst (4ra daga námskeið vegna frídags verslunarmanna) – 17.500 kr.
- Námskeið 7 – 11. ágúst til 15. ágúst – 20.000 kr.
Við erum með 10% systkinaafslátt. Systkinaafsláttur á að koma sjálfkrafa inn í Sportabler þegar systkini eru skráð inn.
Grafarvogurinn er heillandi staður fyrir börn um sumartímann, enda stutt í náttúrulegt umhverfi og ævintýraleg svæði.
Útilífsskóli Vogabúa byggir á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru sund, náttúruskoðun, klifur, sig, rötun, útieldun, skátaleikir og margt fleira.
Upplýsingar:
Starfssvæði Útilífsskóla Vogabúa eru Grafarvogurinn.
Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára.
Þá daga sem námskeiðin eru haldin stendur dagskráin yfir frá kl. 9.00 til 16.00 alla daga.
Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti klæddir eftir veðri og með þrjú nesti fyrir daginn.
Allir þátttakendur fá sendan með sér ítarlegan bækling um tilhögun námskeiðsins.
Innifalið í verði er öll dagskrá, sundferðir og pylsuveisla á föstudegi hvers námskeiðs.