Neisti
Drekaskátar
Fálkaskátar
Fálkaskátar
Tilheyrir þemanu útieldun í Október
ásamt eftirfarandi færnimerkjum.
Það er gott að vita hvernig hægt er, á einfaldan og öruggan hátt, að kveikja upp og viðhalda báli til að orna sér við, elda eða búa til notalega stemningu. Æfðu undirstöðuatriðin í meðferð elds með því að vinna að “Neisti” færnimerkinu.
Reynir á
- Lausnaleit
- Náttúruvitund
- Samvinnu
Kröfur
Til að fá færnimerkið “Neisti” þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:
- Kveikja á eldspýtu og nota hana til að kveikja upp í lukt eða báli.
- Þekkja hætturnar sem geta skapast af opnum eldi og ræða um hvernig á að haga sér nálægt honum.
- Vita hvað þú átt að gera ef þú brennir þig.