Drekaskátafundir

Miðvikudagar 16:30-17:30
Skátaheimilinu Logafold 106, 112 RVK
Foringi: Embla Nótt Róbertsdóttir

Í Vogabúum er drekaskátasveit. Drekaskátar eru á aldrinum 7 – 9 ára. Í drekaskátastarfi er lögð áhersla á reynslunám, að læra af því að vinna verkefni en ekki af bókum eða útskýringum annarra. Margt er hægt að læra með leikjum og verkefnum í nærumhverfi skátaheimilisins. Því fara drekaskátar mikið í fjölbreytta og skemmtilega leiki, jafnt úti sem inni. Drekaskátar starfa í hópi sem kallast skátasveit og telur allt að 24 skátum. Þeim er oft skipt upp í minni hópa þegar verkefni eru unnin.

Næstu viðburðir Drekaskáta

Viltu vera með?

Skráning í félagið

24Hour Callout

Skráning í félagið

UM STARF DREKASKÁTA

Skátarnir fást við margvísleg viðfangsefni á drekaskátaaldri. Þá einbeita skátarnir sér að mestu leyti að leikjum og skemmtilegum verkefnum sem styrkja ýmsa dýrmæta eiginleika svo sem traust, þolinmæði, samvinnu, samkennd og sjálfsbjargarviðleitni. Á þessum yngstu árum í skátastarfi öðlast skátarnir grunn í allskyns færni sem þau skerpa enn fremur á efri aldursbilum. Þrátt fyrir ungan aldur eru skyndihjálp, útieldun, rötun, náttúruvitund og útivera í ýmsum aðstæðum á meðal þess sem drekaskátar fá að reyna.

VIKULEGIR HITTINGAR DREKASKÁTA

Yfir starfsárið hittast drekaskátar vikulega á föstum tímum í skátaheimili síns félags og nágrenni þess, sá hópur myndar skátasveit. Dagskráin er fjölbreytt yfir árið en tekur iðulega mið af áhuga og getu hópsins ásamt árstíð hverju sinni. Á þessum vikulegu fundum kynnast skátarnir sífellt betur og öðlast smám saman færni til að takast á við stærri áskoranir.

VIÐBURÐIR Á VEGUM SKÁTAFÉLAGSINS

Drekaskátar fara gjarnan í styttri ferðir og útilegur með sínu skátafélagi en taka síðan þátt í hluta af lengri ferðum með eldri skátum félagsins s.s. félagsútilegum og skátamótum þar sem þau  upplifa hvað bíður þeirra á efri aldursbilum skátastarfs.

VIÐBURÐIR Á VEGUM BÍS

Á vegum Bandalags íslenskra skáta, landssamtaka skátafélaganna, eru árlega haldnir tveir viðburðir fyrir drekaskáta. Drekaskátadagurinn er í mars og er dagsviðburður þar sem drekaskátar af öllu landinu koma saman og spreyta sig á ýmsum fjörugum áskorunum. Á hverju ári tekur eitt skátafélag viðburðinn að sér og býður öllum drekaskátum landsins og því fer viðburðurinn fram á ólíkum stað hverju sinni.

Drekaskátamót er síðan haldið í júní á hverju ári. Mótið er vanalega haldið á Úlfljótsvatni þar sem drekaskátar af öllu landinu koma saman, reisa tjaldbúð, taka þátt í fjölbreyttri dagskrá og gista eina nótt í tjaldi.

EINKENNI DREKASKÁTA

Klútur drekaskáta er gulur og festur með skátahnút sem skátarnir útbúa sjálfir eða bundinn með vinahnút. Klútinn fá skátarnir afhentan til að marka að þau séu vígðir meðlimir í skátahreyfingunni og hafi lokið vígslugrunni síns aldursbils. Vígslugrunnur drekaskáta er að vinna skátaheitið, þekkja kjörorð skáta og tileinka sér fyrstu fjórar greinar skátalaganna.

SKÁTALÖG DREKASKÁTA

Skáti er hjálpsamur
Skáti er glaðvær
Skáti er traustur
Skáti er náttúruvinur

Aldursmerki drekaskáta eru þríhyrningslaga og eru saumuð aftan á klútinn. Brún merkisins markar aldur drekaskátans þar sem brons er fyrir 7 ára, silfur fyrir 8 ára og gull er fyrir 9 ára. Merkin fá skátarnir afhent frá sínum skátafélögum sem hafa ólíkan hátt á því hvernig og hvenær þau eru afhent.

FÆRNIMERKI DREKASKÁTA

Færnimerkin eru ofin merki sem skátarnir geta unnið sér inn með því að ljúka tilteknum dagskrárgrunni sem liggur að baki hverju merki. Dagskrá færnimerkjanna þekur breitt áhugasvið og eru þess eðlis að einstakir skátar geta unnið að þeim á eigin vegum, í smærri hópum skáta eða með allri skátasveitinni. Drekaskátar geta strax unnið að ýmsum færnimerkjum sem hæfa þeirra aldri, sum þeirra eru stigvaxandi og eru undanfari merkja sem unnið er að á eldri aldursbilum.

Óska eftir símtali

    Starfsmaður Vogabúa mun hafa samband við þig og svara spurningum þínum um skátastarfið.

    Skráðu þig í Skátafélagið Vogabúar

    Skemmtilegt starf fyrir skáta á öllum aldri

    Skráning í félagið