Færnimerki rata

Rata

Fálkaskátar
Dróttskátar

Tilheyrir þemanu rötun í september
ásamt eftirfarandi færnimerkjum.

Færnimerki ramba
Færnimerki náttúrulega

Áður en haldið er á vit ævintýranna í óbyggðum er mikilvægt að geta fundið félaga sína og vera fær um að rata. “Ratvís” er framhald af færnimerkinu “Finnast” og fræðir þig um þau tæki og tól sem hjálpa þér til við rötun og ratvísi.

Reynir á

  • Gagnrýna hugsun
  • Lausnaleit
  • Náttúrulæsi
  • Samvinnu

Kröfur

Til að fá færnimerkið “Ratvís” þarft þú að kunna skil á eftirfarandi:

  • Skilja samspil landakorta og náttúrunnar og þekkja helstu tegundir landakorta.
  • Geta notað mismunandi tegundir af landakortum, í mismunandi skölum, til að rata og finna eigin staðsetningu, bæði í byggð og náttúru.
  • Kunna að nota áttavita og nota hann til að finna höfuðáttir og taka stefnu á leiðarenda.
  • Kunna aðrar leiðir til að finna höfuðáttir, t.d. með úri, pólstjörnunni eða ummerkjum í náttúrunni.
  • Vita hvar þú getur fundið landakort og gervitunglamyndir á netinu.
  • Hafa prófað og þekkja grunnvirkni GPS tækja, hafirðu aðgang að því.

Skráðu þig í Vogabúa

Skemmtilegt starf fyrir skáta á öllum aldri

Skráning í félagið