Færnimerkið Neisti

Neisti

Drekaskátar
Fálkaskátar

Tilheyrir þemanu útieldun í Október
ásamt eftirfarandi færnimerkjum.

Færnimerkið Logi
Færnimerkið bál
Færnimerkið Kokkur
Færnimerkið Aðstoðarkokkur
Færnimerkið Meistarakokkur

Það er gott að vita hvernig hægt er, á einfaldan og öruggan hátt, að kveikja upp og viðhalda báli til að orna sér við, elda eða búa til notalega stemningu. Æfðu undirstöðuatriðin í meðferð elds með því að vinna að “Neisti” færnimerkinu.

Reynir á

  • Lausnaleit
  • Náttúruvitund
  • Samvinnu

Kröfur

Til að fá færnimerkið “Neisti” þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi:

  • Kveikja á eldspýtu og nota hana til að kveikja upp í lukt eða báli.
  • Þekkja hætturnar sem geta skapast af opnum eldi og ræða um hvernig á að haga sér nálægt honum.
  • Vita hvað þú átt að gera ef þú brennir þig.

Skráðu þig í Vogabúa

Skemmtilegt starf fyrir skáta á öllum aldri

Skráning í félagið